top of page
Search


Fjöldi þjóðerna í Fjallabyggð
Langaði að deila með ykkur hvað við erum heppin að búa í fjölmenningarsamfélagi. Hér í Fjallabyggð býr, samkvæmt Hagstofunni, fólk frá 39 löndum auk okkar sem erum fædd hér á landi með íslenskt ríkisfang. Hvet ykkur til að láta mig vita ef þið teljið að skráningin sé ekki rétt. Mannfjöldi eftir kyni, sveitarfélagi og ríkisfangi 1. janúar 2026 Alls Fjallabyggð 2026 Alls 1969 Ísland 1773 Danmörk 2 Noregur 2 Svíþjóð 6 Austurríki 1 Belgía 2 Búlgaría 1 Tékkland 3 Þýskaland 6 Eistl
Bjarkey O Gunnarsdóttir
Jun 11


Skólaslit TÁT og starfslok Magga
Kæru gestir Nú liggur fyrir að skólastjórinn okkar, Magnús Guðmundur Ólafsson, eða bara Maggi eins og við köllum hann, er að láta af störfum og eru þetta því hans síðustu skólaslit. Á þessum tímamótum er tilvalið að fara í stórum dráttum yfir starfsferil Magga og kannski ástæður þess hvers vegna hann hefur helgað starfsferil sinn tónlist. Það má með sanni segja að Maggi hafi um áratugaskeið verið einn helsti burðarásinn í menningar- og tónlistarlífi Ólafsfjarðar sem og Fja
Bjarkey O Gunnarsdóttir
May 30


29. des.-23. jan.
Langt að þessu sinni ákvað að taka saman mánuðinn. Lítið um vinnutengdar myndir en meira af hinu dásamlega veðri og umhverfi í Fjallabyggð. Nú var komið að því að hreinsa upp fyrir áramótin það sem þurfti. Svara póstum og símtölum, samþykkja laun og reikninga og þá gat nú nýja árið gengið í garð. Ég skellti mér svo í 10. km. gamlársdagshlaup. Tók svo við björgunarsveitarmanninnum fyrir soninn sem ákvað að fyrirtækið hans Kælikerfi myndi styrkja Björgunarsveitina Tind í Ólafsf
Bjarkey O Gunnarsdóttir
Jan 23


Ör annáll 2025
Fyrir ykkur sem viljið sjá fleiri myndir þá eru þær á fésbókinni. Árið byrjaði í rólegheitum en við hjónin fórum til Seefeld á gönguskíði enda vetur hér í Ólafsfirði með eindæmum lélegur og skíðafæri afleitt. Konan skráði sig í leiðsögunám í janúar svona til að hafa eitthvað að gera. Lét svo plata mig í að vera formaður Kvenfélagsins Æskunnar í febrúar. Þar sem konan sló í sextugt í febrúar var haldin veisla með góðum vinum og fjölskyldu. Tristan, elsta barnabarnið, var svo f
Bjarkey O Gunnarsdóttir
Dec 24, 2025


Rúmlega vika 15. – 23. des.
Það snjóaði seint í gærkveldi og var þess vegna bjartara um að litast eldsnemma í morgun þegar ég fór til vinnu. Allskonar tölvupóstum svarað, heyrði svo í fyrrum deildarstjóra um nokkur mál. Alltaf gott að geta leitað til þeirra sem eiga mikla reynslu í farteskinu. Útbjó svo gjafakort handa verðlaunahöfum í hreystikeppni grunnskólans sem þau fá afhent á litlu jólunum á fimmtudaginn. Fundaði svo með fólkinu sem sér um börnin í frístund og lengdri viðveru þar sem við fórum yfi
Bjarkey O Gunnarsdóttir
Dec 23, 2025


Tvær vikur eru það núna 24. nóvember - 7. desember
Vikan hófst á því að svara tölvupósti, fara yfir skipulag vikunnar, örfundur með fulltrúum barnaverndarþjónustu Akureyrar og svo fundur með Karen um dagskrána framundan í Neon. Gruflað í gögnum um heilsueflandi samfélag. Fékk beiðni um að taka þátt í starfshópi LEB um öldungaráð sem ég varð við og hlakka til samstarfsins. Þriðjudagurinn hófst á því að lesa og klára undirbúning fyrir fund í stýrihópnum um heilsueflandi Fjallabyggð. Fór svo yfir áhugaverð gögn sem ég hyggst leg
Bjarkey O Gunnarsdóttir
Dec 15, 2025


Vikubók sviðsstjórans 17. - 23. nóvember
Mánudagurinn hófst á því að svara tölvupóstum, fara í gegnum allskonar reikninga og svara símtölum. Eftir hádegi fór ég svo til Akureyrar á fund með MEMM, sem er þróunarverkefni sem miðar að því að styðja við menntun og inngildingu barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íslensku skóla- og frístundastarfi. Þar var farið yfir ýmsa gagnlega hluti sem koma að góðum notum við mótun skólaþjónustunnar. Einnig voru sveitarfélögin hvött til að setja sér innflytjendas
Bjarkey O Gunnarsdóttir
Nov 24, 2025
Our Recent Posts
Tags
bottom of page





